Styrktaraðilar

Borði
Borði

Væntanlegir viðburðir

27.02.2012 20:00 - 22:30
Æfing kaffi 1.Bassi

05.03.2012 20:00 - 22:30
Æfing kaffi 2.Bassi

12.03.2012 20:00 - 22:30
Æfing kaffi 2.Bassi

19.03.2012 20:00 - 22:30
Æfing kaffi 2.Bassi

Innskráning virkra félaga




Vefsidugerd:
Moli - tvlvur & tfkni Moli.is
Starfið framundan Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 15 Febrúar 2012 20:14

 

Mikið er um að vera hjá kórnum um þessar dagana, laugardaginn 19.febrúar er hinn árlegi æfingadagur hjá kórnum og er þá sungið allan daginn með hléum og lagður góður grunnur undir lög vortónleika en undarfarinn mánuð hefur verið æft tvisvar í viku þ.e á mánudögum þar sem æfð eru lög vortónleika og á fimmtudögum þar sem æft hefur verið fyrir 100 ára afmælistónleika Karlakórs Þrasta í Hafnafirði  sem haldnir verða í Hörpu sunnudaginn 19. Febrúar og mun Karlkór Selfoss koma þar fram ásamt fleiri kórum.

Sjá frétt í mbl.

 

 
Kvennaklúbbur Karlakórs Selfoss 40 ára Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 18 Janúar 2012 19:18

Á þessum degi fyrir 40 árum var stofnaður Kvennaklúbbur Karlakórs Selfoss og af því tilefni vill Karlakór Selfoss óska konunum okkar til hamingju með daginn með þökk fyrir stuðninginn og samstarfið í þessi ár

 

Látum hér fylgja með sögu kvennaklúbbs rituð af Helgu R Einarsdóttir 2008


Kvennaklúbbur Karlakórs Selfoss.

Þegar Karlakórinn á fyrstu árum, fór að ferðast um landið og halda skemmtikvöld og árshátíðir,voru konurnar að sjálfsögðu með.En þær þekktust ekki mikið innbyrðis.Til að bæta úr þessu kom upp sú hugmynd að stofna félagsskap eiginkvenna kórmanna.

Haustið 1971 lögðu tvær konur upp í göngu um bæinn, sem þá var reyndar bara þorpið Selfoss og leiðir ekki langar.Margrét Ó.Óskarsdóttir og Helga R.Einarsdóttir skiptu með sér og heimsóttu allar konur sem þær vissu búandi með kórmönnum og spurðu hvort þær vildu vera með í félaginu.Sumar höfðu aldrei komið með í ferð eða á samkomur en allar sem ein svöruðu þessu játandi. Það var alveg sjálfsagt að stofna svona samtök.

Fer nú hér á eftir fundargerð stofnfundar.

Stofnfundur samtaka eiginkvenna félaga í Karlakór Selfoss, var settur að Tryggvagötu 14 b þriðjudaginn 18.jan. 1972 kl.9.00 e.h. Helga Einarsdóttir setti fundinn og skipaði Guðmundu Ólafsdóttur fundarstjóra. Hún bað svo Guðmundu Auðunsdóttur að vera fundarritara.

Þá var byrjað á að kjósa stjórn og var

Helga Einarsdóttir einróma kosin formaður.

Margrét Óskarsdóttir gjaldkeri,

Guðmunda Auðunsdóttir ritari

Guðmunda Ólafsdóttir til vara.

Síðan hófust umræður um nafn á félagsskapinn og var það einróma álit að nafnið yrði að tengjast kórnum á einhvern hátt, þar sem það væri okkar eina markmið að starfa í þeirra þágu.

Aðalleg var rætt um þrjú nöfn.

Það voru: "Stoð karlakórsins", "Kvennaklúbbur karlakórsins" og "Konur kórbræðra".

Samþykkt var að nafnið yrði "Konur kórbræðra".

Ákveðið var að hittast fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði, kl. 9.00 að kvöldi, heima hjá einni af félagskonunum til skiptis og fara þá t.d. eftir stafrófsröð.

Þetta áttu að vera kaffifundir og hver félagskona borgaði 100 krónur í hvert skipti og að allar ættu að borga, hvort sem þær gætu mætt eða ekki.

Reglur voru settar um að ekki mætti hafa nema þrjár sortir af kökum með kaffinu,e n velja mætti um: formkökur hvítar eða brúnar, kleinur, pönnukökur, vöfflur og flatkökur.

Þá las formaður málefnasamning sem starfað skyldi eftir og var hann á þessa leið:

"Við erum hér samankomnar í kvöld, konur félaga í Karlakór Selfoss í þeim tilgangi að stofna til samtaka okkar í milli.

Hugmyndin er að við störfum í samvinnu við kórinn að öllum þeim málefnum sem honum gætu orðið til góðs á allan þann hátt sem okkur er fært. Bæði eftir okkar eigin hugmyndum og ekki síður ábendingum og tilmælum kórfélaganna.

Við munum kjósa þrjár konur úr okkar hópi til þess að hafa stjórn á öllum hinum og til þeirra skal stjórn karlakórsins snúa sér óski þeir eftir afnotum af kvenlegri skynsemi".

Þetta var einróma samþykkt.

Að lokum skrifuðu allar fundarkonur nafn sitt í fundargerðabókina.

Þá var fundi slitið".

Tuttugu og tvær konur skrifuðu nafnið sitt í bókina þetta kvöld.

Á fyrsta kaffifundi var nafnið á félaginu tekið til endurskoðunar. " Þar sem óánægju hafði gætt með það hjá eiginmönnum og nokkrum félagskonum", stendur í fundargerð. Satt að segja gat gjaldkeri ekki hugsað sér að segja þetta nafn upphátt í Landsbankanum þar sem hún á fyrstu dögum stofnaði reikning til ávöxtunar hundraðkallanna.

Nafnið varð svo Kvennaklúbbur Karlakórs Selfoss og hefur gefist vel bæði í bönkum og annarsstaðar.

Síðan eru liðin 37 ár.

Kvennaklúbburinn hefur síðan starfað óslitið og verið kórnum ómetanleg stoð. Þó aldrei hafi verið lagt ofurkapp á fjáröflun hafa hundraðkallarnir orðið fleiri en talið verður og konunum orðið allt að féþúfu.

Þær hafa gefið kórnum góðar gjafir, lagt sitt af mörkum við utanlandsferðir og eiga nú hlut í félagsheimilinu sem þær reka með kórnum. Þar eru nú haldnir fundir og aðrar samkomur klúbbsins sem ætíð heppnast vel, þó ekki sé alltaf boðið uppá formkökur. kleinur eða flatkökur.

Engin er skyldug til að vera með, en allar eru velkomnar.

Það hefur sýnt sig sem ætlað var í upphafi að í kvennaklúbbnum hafa konurnar fengið tækifæri til að kynnast, svo þær njóti betur þeirra ferða og viðburða sem  í boði eru.

Rauðholti 9.29.12.2008.

Helga R.Einarsdóttir.

 
Herrakvöld 2012 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Sunnudagur, 15 Janúar 2012 21:23

Herrakvöld 2012

 

Mig langar til að kynna ykkur Karlakórsins menn

Sem kirja ýmis  lög og ljóð sem lifna við í senn

Kynþokkinn á tónleikunum kreistist okkur úr

Svo konur yfir sjötugt þær byrja á ný á túr.

 

Í bassanum er Sigurjón sem sættir hverja rós

hann sönglar um í stofunum og tengir þar öll ljós

Hann fílar  ekki ölið en fær sér vodka í kók

og Faunavindil  sígur hann ef langar hann í smók.

 

Í kirkjunni  er Valdimarinn með sitt vinaband

og vingjarnlegur talar hann í útvarp Suðurland

Það hringja í hann konur sem langa að velja lag

en langflestar þær komnar eru á síðsta söludag.

 

Í Húsó er hann Viðar að selja mönnum við

hann viðar að sér kúnnum og gefur engum grið

Ef þar kemur kona hann smælar eins og smér

og smellir henni í sturtubotninn og lokar á eftir sér.

 

Markús hleypur hraðar enn kengúra og kind

en konu ekki finnur hann sem er jú mikil synd

Á landsmótinu hóp af medalíunum hann hlaut

Hann hoppar yfir girðingarnar eins og þarfanaut.

 

Þórir hefur yfirsýn  þvi hann er ekki smár

hann hefur vaxið upp í gegnum allt sitt fína hár

Í erfðagrunninum hann mælir meyjar í Decode

og metur hvort þær flokkist undir ; falleg eða ljót.

 

Í Býkó er hann Denni og dregur hvergi úr

dömunum hann selur fittings, skrúfur, rær og múr

Ef þær vilja máta stígvél allveg splunku ný

hann stiður þær um mittið, meðan fara úr og í.

 

Textinn hér í lögunum er tætingslegur oft

 töluverður pirringur, hleypur þá í Loft

Ef Erlingur nú ekki finnur rétta textann sinn

hann yrkir bara nýjan texta í staðinn fyrir hinn.

 

Við höfum líka bankastjóra bæði einn og tvo

í bönkunum oft læra þeir, seðlana að þvo

Postulanna nöfn þeir bera; Pétur og Jóhannes

og pungar þeirra beggja eru óskaplega spes.

 

Ekki var nú gleðin rík er Gummi næstum dó

hvorki Guð né Satan vild´ann, þeir sögðust hafa nóg

Þeir sögðu hann yrði að moka snjóinn og mæta á æfingar  

minnka við sig kynlífið og blása út æðarnar

 

Sigurdór hann settist loksins í hinn helga stein

og situr núna heima svo  Helga er ekki ein

Hann raðar öllum nótum og notar tímann sinn

að negla fast  í hugann,  annan tenórinn.

 

Sjálfur er ég hérna með snoðin hvítkálshaus

og sjaldan er ég báðu megin allveg rófulaus

Undir mér er lítið en fljótt ég fyllist von

ég fæ mér kannski bráðum svona iðnaðarsilicon

 

Nú læt ég þessu lokið að mæra þessa menn

þó margir séu eftir af kórfélögum  enn

Þið áttið ykkur á því,  við  erum ekkert slor

og eflaust mætið allir svo á tónleika í vor.

 

H.Ben  13 janúar 2012

 

 

 
Karlakvöld 2012 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 09 Janúar 2012 09:11

 
Æfingar á nýju ári Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 09 Janúar 2012 08:54

 

Fyrsta æfing ársins 2012 verður í  kvöld mánudaginn 9. janúar kl. 20 og er mikið starf framundan hjá kórnum ,

fyrst ber að nefna hið árlega karlakvöld sem haldið verður föstudaginn 13. Janúar kl.20.

En auk hefðbundinna æfinga fyrir vortónleika þá er verið að æfa fyrir tónleika þann 19. Febrúar í Hörpunni í tilefni

100 ára afmæli Karlakórsins Þrasta og hafa þeir boðið Karlakór Selfoss ásamt nokkrum öðrum kórum að vera þar.

 

 
Verkefni á aðventu Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 20 Desember 2011 11:17

 

Karlakór hefur að venju um aðventuna tekið þátt í hinum ýmsu viðburðum tengdum jólum og má þar fyrst nefna

aðventutónleikar í Selfosskirkju sem haldnir voru sunnudaginn 4.desember síðan þann 10. desember söng kórinn í Garði

jólana á Selfossi við komu jólasveinanna og kvennaklúbbur Karlakórs Selfoss bauð í vöfflur og kakó  í Tryggvaskála.


 

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir sem Magnús Hlynur Hreiðarsson tók við þetta tækifæri

 

Hefð hefur verið fyrir því að syngja í Heilsustofnun NFLÍ í Hveragerði á aðventunni og var engin undantekning þetta árið og

var gaman að því hvað margir komu þar og hlýddu á söng kórsins.

Og að lokum stóð kórinn fyrir jólastund í Selfosskirkju mánudaginn 19.des ásamt Sönghópnum Veirunum, var þar hugguleg

jólastemming þar sem andi jólanna sveif yfir vötnum, og flutti þar einnig Nanna Sif Svavarsdóttir hugvekju, frítt var inn

á tónleikana.

 

Og að lokum þá vill Karlakór óska öllum gleðilegra jóla með þökk fyrir árið sem er að líða.

 

 
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Blaðsíða 1 af 10